Heimasíða fyrir prinsessuna

Ég veit nú ekki hversu margir kíkja hérna inn ennþá en væntanlega hafa einhverjir verið að velta því fyrir sér að nino.is síðan sem var opnuð á meðgöngunni sé dottin út.
Við ákváðum að vera með heimasíðuna fyrir prinsessuna annarsstaðar og endurnýjuðum því ekki áksriftina á nino - enda vorum við bara að prófa þetta svæði.

Við munum opinbera heimasíðu barnsins eftir nafngiftarveisluna sem er seinnipartinn í september, þangað til verðiði bara að vera þolinmóð og láta facebook nægja (þeir sem eru þar þ.e., hinir verða bara að bíða eða kíkja í heimsókn).

Þeir sem voru með aðgang að nino síðunni fá sjálfkrafa aðgang að nýju heimasíðunni, aðrir sem óska eftir aðgangi geta sent póst á laugalauga(hjá)gmail.com


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Jei gaman að það skuli vera ný síða í bígerð svo maður getur þá aðeins fylgst með dömunni:)

og hlakka líka mikið til að fá að vita hvað hún heitir :)

Fanney (IP-tala skráð) 10.9.2009 kl. 19:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband