3.1.2008 | 22:26
Annasamt ár
Eitthvað segir mér að árið 2008 verði einstaklega gott ár og verði nokkuð fljótt að líða. Alveg ótrúlega margt á dagskránni og það er bara 3. jan í dag. Já, og litla systir mín er 8 ára í dag :)
Meðal þess sem er á döfinni eru fjölmörg afmæli og veislur, sem byrjar með fertugsafmæli mágkonu minnar bara núna á laugardaginn, sextugsafmæli móður minnar, fimmtugsafmæli tengdamömmu, ferming hjá Gunnari Þór og fullt af öðrum fermingum í fjölskyldu Tryggva..
Svo eru að minnsta kosti tvær utanlandsferðir planaðar, árshátíðarferð með vinnunni minni og svo einkaferð með Tryggva einhverntíma (er í skipulagningu..)
Og svo er það allt hitt, æfa mig fyrir maraþon, æfa mig á gítarinn, lesa fyrir Microsoft prófið (sem hefur ekki gengið nógu vel hingað til), fara á ræðunámskeið, vera aðstoðarmaður á Dale Carnegie námskeiði (ó já, og ég er ekkert smá spennt fyrir það), læra soldið leyndó sem ég ætla ekki að segja frá strax (hehe.. nú verða einhverjir forvitnir) og svo allt hitt sem mér er ekki ennþá búið að detta í hug að gera :) Hver veit nema maður vinni í lottó og fari að byggja draumahúsið sitt
Já, nóg fyrir stafni sem er bara gott.
Árið 2007 var líka einstaklega gott ár og meðal þess sem stóð mest uppúr var m.a:
-ég skipti um vinnu
-pabbi átti sextugsafmæli
-við fluttum á Vellina í frábæra íbúð (með óþéttum gluggum þó)
-Tryggvi skipti um atvinnuvettvang og starfar nú í okkar eigin fyrirtæki
-tvennar góðar utanlandsferðir
-tvö brúðkaup, eitt sem ég komst því miður ekki í
-utanlandsferðir (Ljubljana og Kaupmannahöfn)
-nýr fjölskyldumeðlimur (She-Ra)
-fékk golfveiruna
og fullt fleira...
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.