15.7.2008 | 17:25
Brjóstsykursgerð
Jæja nú er ég farin að bjóða upp á námskeið í brjóstsykursgerð. Hef áður verið með lokuð námskeið fyrir vinnufélaga annarsvegar og JCI félaga hinsvegar (á eftir að vera með eitt JCI námskeið - mikil eftirspurn). Nú var kominn tími til að anna eftirspurn og bjóða öllum upp á námskeið.
Þau sem hafa komið á námskeið til mín hefur fundist þetta afskaplega gaman - og svo er þetta líka svo afskaplega bragðgott
Hér er auglýsingin:
Og heimasíðan er hér
Nú er bara um að gera að hópa sig saman í 4-6 manna hópa eða hafa samband við mig svo ég geti safnað þeim sem eru ekki í hóp saman.
Athugasemdir
Mæli sko með þessu! Frábært námskeið og alveg hreint ótrúlega gott nammi!
Synd að maður er í nammibanni næstu vikurnar :S hahaha
Tryggvi F. Elínarson, 17.7.2008 kl. 09:05
Heyrðu! Ég er spenntur fyrir þessu. Ég þarf bara að finna 3 aðra eða fleiri og voila!
Sjáumst á afmælisdaginn minn (vonandi).
Sigurjón, 19.7.2008 kl. 09:39
Sigurjón sendu mér endilega póst þegar þú ert tilbúinn með hóp :)
Guðlaug Birna Björnsdóttir, 22.7.2008 kl. 11:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.