Gott að hafa góðan stuðningsfulltrúa

Já.. ég mætti ekki í sund í gærmorgun. Og ég mætti ekki í sund í morgun. Og þá fékk ég sms: "Sko - þetta gengur nú ekki!"

Þetta var semsagt móðir mín að skamma mig fyrir að mæta ekki. Ég mæti á morgun. Vil ekki fá fleiri skammir Pinch

Annars ætlum við Tryggvi að kaupa okkur hlaupabretti á eftir, þá getum við farið að hlaupa heima og það er ekkert sem getur stoppað okkur og engar afsakanir. Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eigum við að starta keppni um hve oft þið notið það, ég er með :)  Mig minnir líka að mamma þín sé með skíðavélina okkar ef þið viljið spara ykkur aurinn og nota frekar skíðavél?

Júlía Rós. (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 08:09

2 Smámynd: Guðlaug Birna Björnsdóttir

Já við getum startað keppni um hversu oft við notum það... hvað viltu leggja undir og hvernig viltu haga reglum?

Og af hverju er mamma með skíðavélina ykkar? Afhverju eruð þið ekki með hana? :)

Guðlaug Birna Björnsdóttir, 13.3.2008 kl. 12:23

3 identicon

Ég segi að eftir tvo mánuði verðið þið hætt að nota hjólið og það farið að safna ryki.  Ég legg undir matarboð.

Raggi frændi þinn skildi þessa stigavél eftir hjá okkur þegar hann flutti út, ég hef aldrei stigið á vélina.

Heyrðu jæja ég verð að drífa mig til Spánar :) Hafðu það gott litla krútt.

Júlía Rós (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 11:25

4 Smámynd: Guðlaug Birna Björnsdóttir

Ok... ég samþykki þetta með þessum skilyrðum:

Ef brettið er farið að safna ryki eftir tvo mánuði þá bjóðum við ykkur í mat

Ef brettið er jafn mikil notað eftir tvo mánuði og núna þá bjóðið þið okkur í mat

Díll?

Guðlaug Birna Björnsdóttir, 15.3.2008 kl. 10:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband