23.9.2008 | 11:02
Hvannadalshnjúkur í vor
Ég er búin að taka ákvörðun um að skrá mig í Astma-Fjallgöngu verkefnið :) Er einmitt á leiðinni í læknisskoðun í dag og í þolpróf á morgun. Spennandi að sjá hvernig ég stend mig núna í því eftir maraþonið. Er reyndar ekkert búin að hlaupa eftir maraþonið sem er alls ekki gott :( Hef bara ekki gefið mér tíma í það.
En ég stend mig vel í súludansinum, er farin að öðlast meira öryggi á súlunni, þora að fara alveg upp og niður í armbeygju alveg ein, og farin að ná að halda mér aðeins meira uppi en fyrst. Þetta kemur með tímanum. Þegar námskeiðið er búið verð ég orðin mega klár í þessu
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.