Ég er svo ekki að fylgjast með lífi fræga fólksins

Hafði ekki hugmynd að hún ætti von á barni. Vissi heldur ekki um hana Christinu. Maður ætti kannski að fara að lesa slúðurblöðin oftar svo maður geti verið með í umræðunni...

..nee held ekki. Líf þeirra kemur mér barasta ekkert við og þau mega lifa í friði fyrir mér.

En já, að horfa á fæðingu eign barns.. baaah held ég gæti það ekki! Finnst nógu erfitt að horfa þegar nál er stungið í mig. Hvað þá að sjá eitthvað stórt flykki koma út úr líkamanum mínum. En maður veit nú aldrei fyrr en á hólminn er komið, hver veit, kannski á ég eftir að biðja um spegil. Aldrei að segja aldrei!


mbl.is Horfði á fæðinguna í spegli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

tjah.. það er nú eitthvað mis í þessarri frétt..  var henni "réttur spegill" ? .. og hva , lág hún þarna með útglennta fætur í fullum rembing, teygjandi út höndina með spegil til að sjá? ahahahaha... soldið skrítin ímynd, ... myndi frekar halda að spegli hafi vara verið komið fyrir einhverstaðar í sjónmáli.... ALLAVEGA ,  hin lýsinging, .. dosent paint a pretty picture... :) .. og ALLVEGA... þá vil ég ekki einn einasta spegil á fæðingardeildinni takk fyrir pent!  

Vala (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 16:51

2 identicon

Ég er 55 ára og hef þá yndislegu lífreynslu árið 1988, að hafa horft í spegil á son minn fæðast. Það var alveg meiriháttar. Þetta var þriðja barnið mitt af fjórum og þarna hafði ég fyrst á tilfinningunni til hvers var að rembast... Ég var svolítið feimin fyrst og svo tók ákafinn við.:-)

Ásdís (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 17:52

3 Smámynd: Guðlaug Birna Björnsdóttir

Vala: Já nákvæmlega það sem ég fór líka að pæla - hélt hún bara sjálf á speglinum? Efast stórlega um það!

Ásdís: Frábært hjá þér! Ég afþakka samt ennþá pent.

Guðlaug Birna Björnsdóttir, 23.1.2008 kl. 09:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband