Brrr kalt

Ég er algjör kuldaskræfa. Samt valdi ég horn"skrifstofuna" með gluggum í tvær áttir þegar ég kom hingað til Teris. Það verður víst stundum soldið kalt hérna í horninu en mér er alveg sama. Ég er með hornskrifstofu - og ég barðist fyrir henni.. við drógum spil um hvert okkar fengi hvaða pláss og það var bráðabani milli mín og Kristjáns. Hann fékk hitt gluggasætið - bara með einn glugga. En ég er með hornglugga :)

Það fylgdi reyndar lítill rafmagnsofn sem ég kveiki á á hverjum morgni. Það var nóg að hafa hann bara fyrir aftan mig en nú er ég farin að setja hann undir borð við fæturna á mér. Mmmmmm þá hlýnar mér :)

Radiator

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband