10.7.2008 | 10:39
Ég hefði gefið þeim pylsurnar
þ.e. ef þeir gleymdu visakortunum.. bara fyrir showið að mæta þarna á þyrlunni. Hefði líka verið upp með mér að ferðalangarnir á þyrlunni hefðu gert sér ferð á minn stað bara til þess að fá sér pylsu :)
![]() |
Þyrlan nýtt í pylsukaup |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.7.2008 | 10:04
hlaup
Ekki nammihlaup þó.
Fór ekki 6 kílómetrana í gær þar sem ég hafði ekki tíma til þess. Fór þess í stað um 4.6 km. Fínasti hringur sem ég fann mér að hlaupa í gær heima, gæti farið hann tvisvar og þá er ég komin með rétt rúma 9km.
Ástæðan fyrir því að ég flaskaði á 6 kílómetrunum var óviðráðanleg. Tommi og fjölskylda sem búa í Kanada (úr fjölskyldunni hans Tryggva) millilentu á Íslandi og voru óvænt yfir nótt (millilendingavesen) og því var tekinn hittingur og grill með þeim, sér í lagi þar sem Tryggvi missir af því þegar þau stoppa á Íslandi í 4 daga á leiðinni til baka þar sem hann verður í Svíþjóð.
Ég s.s. fór aðra leið og fylgdist vel með klukkunni, fór í sturtu og hafði mig til og labbaði svo upp á holt til tengdó (sem er ca. 1.7 km) enda óþarfi að vera á tveimur bílum og eyða meira bensíni en þörf er á ;-) Fékk því óbeint mína 6km :-)
Ætla að hlaupa í hádeginu í dag.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.7.2008 | 12:41
Alveg hundleiðinlegt blogg
Ég skil það vel ef fólk nennir ekki að lesa bloggið mitt þessa dagana. Ekkert nema heilsutal og mataræði.. myoplex og hlaupafréttir.
En það sem ég ætlaði að segja er að þetta myoplex duft er að venjast. Það var ógeðslega vont á mánudaginn. Ekki eins vont í gær og í dag var það bara sæmilegt, svo sæmilegt að ég þurfti ekki að pína það ofan í mig. Kannski verður það orðið gott í lok vikunnar. Hvort þetta er vegna þess að það er vont en það venst, eða ég er að blekkja sjálfa mig veit ég ekki, er bara fegin að það skánar.
Annars var ég bæði dugleg og ekki dugleg í gær. Dugleg í þeim skilningi að ég bar olíu á garðborðið okkar svo það sé hægt að fara að nota það og svo það skemmist ekki. Ætla að setja aðra umferð á það í dag þegar ég kem heim og jafnvel þá þriðju á morgun. Ekki dugleg í þeim skilningi að ég nennti ekki út að hlaupa. Skamm Lauga. Ég ætla þó að fara að hlaupa í dag þegar ég er komin heim og búin að fara út í búð. Ætla þá að hlaupa nýjan hring sem eru rúmir 6 kílómetrar að heiman. Verst hvað þessi leið er bara engan veginn falleg, allavega ekki strandgatan í hfj auk þess að það er mikil umferð á henni. Ætla annars að byrja á að hlaupa í hádeginu í laugardalnum - fer í það á föstudaginn, jafnvel á morgun OG föstudag. Það er sko fallegur staður til að hlaupa. Ef einhvern langar að joina mér í hlaupatúra í laugardalnum í hádeginu er félagsskapur alltaf vel þeginn.
Lífstíll | Breytt 10.7.2008 kl. 10:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.7.2008 | 10:53
Dagur 3
Og sjitt hvað mér líður vel! Ég er aldrei svöng og ég er aldrei of södd. Bara passleg. Stundum þarf ég meira að segja að minna mig á að borða svo ég gleymi því ekki (sem þýðir að síðasti skammtur á undan var aðeins of stór - máltíðin á að vera hnefastór).
Ég nenni að sjálfsögðu ekki að elda mér eitthvað fyrir hverja einustu máltíð (sem ég hef auðvitað ekki tíma fyrir heldur - gæti reyndar eldað fyrirfram en ég nenni heldur ekki að borða kjúkling, fisk eða steik í hvert mál) svo þá er gott að fá sér "meal replacement". Við notumst bæði við Myoplex duft og Myoblex bar. Duftið er hreint út sagt ógeð. Maður þrælir því í sig jú en ekki við mikinn fögnuð. Ógeðslegt duftbragð.. þó vanillubragðið og súkkulaðibragðið sem slíkt sé fínt, þá er samt þetta ógeðslega duftbragð. En hinsvegar þá eru Myoplex stykkin alveg geeeeðveikt góð. Bara eins og nammi! Ég hef oft smakkað allskonar svona prótein stangir og rusl sem er ógeðslega vont, súkkulaðið eins og þurrt ég veit ekki hvað og bara ekkert gott. En ég ætlaði varla að trúa því þegar ég smakkaði þetta hvað þetta væri gott. Vá. Bara æðislegt.
Eftir þessa 3 daga í body-for-Life og semi-holla lífernið sem var þar á undan þá líður mér svoooo vel og ég finn hvað ég er að styrkjast og eflast með þessu mataræði og þeirri hreyfingu sem ég er að fá (og alltaf að auka við). Ég fer í golf, hleyp, hjóla og fer í curves. Á sunnudaginn hjóluðum við Tryggvi upp í reit hjá afa hans og ömmu þar sem öll fjölskyldan var að hjálpast til við að slá grasið, klippa trén, vökva - ég játa reyndar að ég sat bara og sleikti sólina og spjallaði við fólkið, en Tryggvi fór með afa sínum fyrir trén og klippti það sem klippa þurfti. (Reiturinn er rétt fyir utan Hvaleyrarvatn..). Hjóluðum frá holtinu (þar sem móðir Tryggva býr), í N1 þar sem við pumpuðum í dekkin og svo upp í reit, og svo aðra leið til baka, fram hjá Hvaleyrarvatni. Allt þetta var um 14.5km. Ekki slæmt.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.7.2008 | 12:54
Ég ætla að veðja á að honum takist þetta á 0 klst
Mér finnst þetta svolítið skringilega áætlað að ætla að synda á 0 - 16 klst. Hvernig ætlarðu að synda yfir Ermasundið á 0 klst? Á ofurhraða kannski. Ef hann er ekki eins vel upplagður þá syndir hann kannski löööööturhægt (miðað við hvernig hann syndir á ofurhraða allavega) og nær þessu á 16 klst
En að öllu gríni slepptu þá finnst mér þetta frábært hjá honum. Go Benedikt
![]() |
Benedikt Hjartarson stefnir á Ermarsund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.7.2008 | 09:11
Og þá hefst það
84 dagar af heilsusamlegu líferni.
Jú ég býst nú við að eftir þessa 84 daga verði þessu heilsusamlega líferni haldið áfram en í dag er 1. dagurinn af okkar eigin Body-for-LIFE áskorun. Og í verðlaun er ferð til Indlands.
Og hvað felst í þessu? Við Tryggvi byrjuðum á því að taka "fyrir" myndir af okkur (sem eru þó ekki fyrirmyndir okkar hehe). Svo mældum við okkur og eftir það skrifuðum við niður matseðil vikunnar máltíð fyrir máltíð. Henni verður fylgt eftir í einu og öllu! Sem þýðir að ég ætla að hætta að borða matinn í vinnunni og koma með minn eigin mat. Þrjár klst á milli máltíða sem allar eru rétt samansettar af prótíni, kolvetni og fitu (góðri fitu). Auk þess munum við halda áfram að hreyfa okkur eins og við höfum verið að gera - nema við aukum við æfingarnar og setjum meira "fútt" í hverja æfingu svo við fáum sem mest út úr þeim.
Þessi viku matseðill sem við gerðum er fyrir sex daga. Sjöundi dagurinn er frjáls dagur (hjá okkur laugardagur), þá má maður hvað sem er (og auðvitað er manni frjálst að halda áfram í holla fæðinu ef vill - nú eða fá sér kökur og gos ef vill). En hinir sex dagarnir eru mjög strangir. So people, bear with us! Það er ástæða fyrir því að við borðum ekki kökurnar ykkar ef þið bjóðið okkur í kaffi. Nothing personal.
Þetta munum við gera í 12 vikur, 84 daga. Og gangi okkur vel þá munum við verðlauna okkur með því að leyfa okkur að fara á heimsþing JCI í Indlandi í nóvember. Ekki slæmt það :-)
Við hefðum líka skráð okkur í body-for-LIFE keppnina hefðum við getað það. Þessi íslenska, líkami fyrir lífið er ekki lengur í gangi og þessi bandaríska er bara fyrir bandaríkjamenn. En þess í stað erum við bara með okkar eigin keppni :-) Indland baby yeah!
Mín fyrirmynd er þessi kona. Hún er 2cm hærri en ég og þegar hún byrjaði var hún 4kg léttari en ég er í dag. Og í dag er þessi kona geðveikt flott! Ég ætla að verða svona flott :-) Og ég hlakka geðveikt til. Þá mun ég passa í fínu brúnu dragtina sem ég hef aldrei farið í (jú ég hef reyndar nokkrum sinnum farið í buxurnar sem þá voru svolítið þröngar en ég kemst ekki í í dag). Og þá kemst ég í fína silkikjólinn sem var saumaður á mig í Tælandi. Og þá get ég verið í honum á gala kvöldinu á JCI þinginu í Indlandi :-D
Vá hvað ég hlakka til :)
p.s. Hljóp 5.5 km í Laugardalnum á fimmtudag :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.6.2008 | 00:19
Fyrsta ofnæmiskastið
Ohh.. ég er búin að vera að monta mig af því hvað ég er komin með góð lyf, hef nánast ekkert fundið fyrir ofnæmi í allt sumar (en er líka búin að vera dugleg að nota nýju fínu lyfin).
En það kom að því að ég fengi ofnæmiskast. Enda er ég í mikilli snertingu við ofnæmisvaldinn núna. Grasið í garðinum er búið að fá að vaxa villt í allt sumar og ekkert hefur verið gert í því. Af hverju? Vegna þess að þegar við Tryggvi höfum ekki verið í útlöndum þá höfum við verið upptekin, hann er að vinna mikið og ekki fer ég út í garð að slá með mitt ofnæmi. Og þar að auki eigum við ekki sláttuvél svo við þurfum að fá hana lánaða hjá tengdó og þess vegna hefur heldur ekki verið skotist út í garð þegar hefur gefist rúm til (já ég veit - ekkert nema afsakanir).
Tryggvi gaf sér þó tíma núna í morgun og í kvöld, tók fyrri umferð í morgun áður en hann fór í vinnuna og seinni umferð eftir að hann kom úr vinnunni. Og vá hvað þetta var mikið gras! Og þar sem grasið er alveg extra þurrt vegna vökvaskorts þá þeytast frjókornin af grasinu og stráunum gjörsamlega út um allt - og þar á meðal auðvitað inn í hús og pirra mig í nefinu og augunum. Arg.
Held ég fari bara upp í rúm núna með kaldan þvottapoka yfir augunum. Það er svo gott þegar augun eru pirruð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.6.2008 | 12:43
Highway to hell
Verktakafyrirtækið og Hafnarfjörður hafa nú selt sál sína djöflinum og eru að hefjast handa við að leggja götu til helvítis. Djöfullinn er jú sníkí bastard og hefur væntanlega platað Klæðningu í að selja sér sál sína (væntanlega eigendanna) gegn því að fá fleiri verkefni í lifanda lífi.. Venjulegu fólki mun líklega finnast þessi gata sem lögð verður ósköp venjuleg og ekkert óvenjulegt kemur upp á hjá því en fyrir djöfla og vondar sálir verður þarna hlið í það neðra.
Ég veit ekki hversu margir hafa horft á þættina Reaper, en þar er fjallað um dreng sem vinnur fyrir djöfulinn vegna þess að foreldrar hans seldu sál hans til djöfulsins og þegar hann varð 18 þá eignaðist djöfulinn hann. Starf hans felst í því að veiða sálir sem hafa sloppið úr helvíti og skila þeim til baka. Það gerir hann í DMV (Department of Motor Vehicles) en það er hálfgert hlið til helvítis, ásamt öðrum opinberum byggingum þar sem venjulegt fólk lýsir heimsókninni sem, já, heimsókn til helvítis :). Skemmtilegir þættir sem ég mæli með (serían tekur reyndar smá tíma að byrja en seinniparturinn af henni er mjög spennandi) ;-)
![]() |
Buðu 66.666.666 kr. |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2008 | 09:51
Að kynnast nýju fólki allstaðar að úr heiminum
Ég verð að vera sammála honum Tómasi sem skrifar hér (eða ég giska að það hafi verið Tómas, leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér) um eitt af því sem gerir JCI skemmtilegt, en það er í hnotskurn hvað það getur verið auðvelt að kynnast nýju fólki allsstaðar að úr heiminum.
Síðasta sunnudag komu hingað til lands tveir félagar frá JCI London (hjón) sem komu til þess að skoða land og þjóð. Þau eru nú á ferðalagi um landið. Þau höfðu samband við okkur og létu okkur vita af komu sinni og því fórum við nokkur með þau í smá skoðunarferð um borgina og út að borða. Og ekki skemmdi fyrir að þetta er alveg þrælskemmtilegt fólk og var kvöldið virkilega ánægjulegt og langt síðan ég hef hlegið svona mikið og í jafn langan tíma.
Það sem er líka svo æðislegt er að þegar við förum út, nánast hvert sem er, getum við haft samband við JCI félagið á staðnum og athugað hvort það vilji einhver koma með okkur út að borða og jafnvel farið með okkur í smá túr um bæinn eins og við gerðum fyrir þau á sunnudaginn. Eða ef maður er þegar búinn að kynnast JCI félögum frá þeim stað er auðvitað tilvalið að hafa samband við þá og efla samböndin.
Og þetta er nú aldeilis ekki eina leiðin til þess að kynnast nýju fólki út um allan heim - og heima - í gegnum JCI. Í JCI eru haldnir margir fundir og skemmtilegar samkomur. Og á hverju ári eru haldin nokkur þing. Ber þar fyrst að nefna landsþingið þar sem öll aðildafélög landsins hittast og þinga og þar gæti maður hitt félaga sem maður hefur ekki hitt áður. Auk þess sem oft koma félagar frá öðrum löndum á landsþingin.
Svo eru það "svæðaþingin" (heiminum er skipt upp í svæði og er Evrópa t.d. eitt svæði). Ég var t.d. á Evrópuþingi núna í júní, þar sem ég kynntist fólki allsstaðar að úr Evrópu, og jafnvel út fyrir Evrópu því ég hitti mjög áhugaverðan mann frá Suður-Afríku. Og svo er það auðvitað heimsþingið þar sem JCI félagar allsstaðar að úr heiminum hittist.
Og ef maður er duglegur að fara á þessi þing erlendis þá kynnist maður að auki nýjum stöðum sem manni hefði ekki endilega dottið í hug að fara á eins og núna á Evrópuþinginu sem var í Turku í Finnlandi. Ég vissi ekki einu sinni af þessari borg áður en hún er virkilega falleg og skemmtilegt að heimsækja hana. Og hver veit nema ég fari til Nýju Delí í Indlandi í vetur? Og svo er ég að fara til Aarhus í Danmörku í október, á landsþingið hjá dönum. Ekki slæmt :)
En jú, auðvitað er fleira við JCI heldur en að kynnast nýju fólki, það er svo miklu miklu meira en það, ég er þvílíkt að eflast og styrkjast við að vera í þessum félagasamtökum. En ég ætla ekki að fara út í það hérna núna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.6.2008 | 10:13
Fyrsta hlaupið - 5km á 38.58mín
Í gærkvöldi tók ég í fyrsta skipti þátt í hlaupi, Miðnæturhlaupinu sem var í Laugardalnum. Í síðustu viku skráði ég mig í hlaupið og skráði mig í 5km. Fór svo að hafa áhyggjur að það væri of stór biti fyrir mig en á sunnudaginn fór ég og prófaði að hlaupa leiðina. Ég fór aðeins vitlausa leið, beygði vitlaust á einum staðnum en endaði á því að fara 4.5 km á 40 mín. Nokkuð gott fannst mér og fylltist sjálfstrausti fyrir hlaupið í gærkvöldi.
Ég passaði mig bara á því að hlaupa á mínum hraða, ekki vera að láta aðra keppendur hafa áhrif á minn hraða. Ég stefndi á að vera á 40 mín. Þegar ég nálgaðist markið greikkaði ég sporið töluvert og var þvílíkt ánægð þegar ég sá að ég var að ná þessu á tæpum 39 mínútum. Ekki slæmt. Sérstaklega er ég ánægð með það að ég hélt jöfnum hraða allan tímann, tók enga spretti og gekk aldrei, nema í lokin þegar ég tók endasprettinn.
Núna finn ég líka að það er ekki lengur astminn sem er að stoppa mig heldur er það fótastyrkurinn. Ég var og er ferlega þreytt í löppunum og ætla því að fara í fótastyrkjandi æfingar á næstunni. Og auðvitað hlaupa meira.
Eftir að ég byrjaði í þessu verkefni (Astma-maraþon) þá hef ég verið frekar löt við að hlaupa og æfa mig en núna þegar ég hef tekið þátt í einu hlaupi er áhuginn sko kviknaður og kominn smá keppnisandi í mig. Svo er laugardalurinn líka svo skemmtilegt svæði til að hlaupa, fallegt svæði og í fyrsta sinn á sunnudaginn fannst mér í alvörunni skemmtilegt að hlaupa. :) Bara gaman að því.
Nú er bara að æfa og æfa fyrir 10km í Reykjavíkurmaraþoni í ágúst :)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)